Danmerkurferð Guðnýjar

Nýtt nýra

11.11.2011 08:00:23 / guddabudda

Föstudagurinn11 11 11

En sú skrifleti. Kominn nóvember og ekkert skrifað í 3 mánuði, en svona er þetta bara. Mætti halda að ég hefði of mikið að gera. Hef reyndar alveg nóg og nú skil ég ekki hvernig maður hafði orku í vinnu og fleira áður en við Jón urðum bara tvö heima. En, núna er ég hætt að vakna þreytt á morgnana og það er alveg frábær tilfinning.

Guðný er alltaf jafn kát á Ísafirði. Nóg að gera, vinnan, bocia( veit ekki hvernig þetta er skrifað) æfingar tvisvar í viku, matreiðslunámskeið og fl. og fl. Lífið á Ísafirði er bara frábært. Engin heimþrá að gagni, þarf ekki að hringja í okkur, oftar en ekki er hún ekki heima þegar ég hringi, út að borða, boðin í mat til stelpnanna sem vinna með henni, hugsa um Hrefnu, o.s.frv.
Já, Ísafjörður fer svo sannarlega vel með Guðnýju. Heilsan er held ég eins góð og hún getur orðið, og hvað er þá hægt að hafa þetta betra. Við fórum í heimsókn eina helgi í haust og Guðný brosir bara allan hringinn.
Læt þetta duga í morgunsárið,
Kv. Steinunn

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.08.2011 11:27:33 / guddabudda

Sunnudagurinn, 14.ágúst.

Góðan og blessaðan daginn.
Núna eru réttir 2 mánuðir síðan Guðný flutti til Ísafjarðar. Hún er alltaf jafn hamingjusöm og ánægð og líður mjög vel. Hún var hér heima vikuna fyrir verslunarmannahelgina og síðan fórum við öll vestur að kíkja á mýrarboltann. Guðný fór bara heim til sín og við gamla settið ásamt Björk og fjölsk. vorum í dásamlega sætu og krúttlegu sumarhúsi í Súðavík yfir helgina og að sjálfsögðu í sól og sælu. Guðný kom í grill til okkar og hún bauð okkur í kaffi, nýbakað og fínt hjá henni. Hún er búin að koma sér mjög vel fyrir.
 Í haust stendur reyndar til að hún flytji í stærra húsnæði, sem er nær öllu, það er rétt hjá sundlauginni. Þá verður svo stutt í allt, þá er bara hægt að nota hjólastólinn eða göngugrindina, verður ekki eins bundin af akstri eins og núna þar sem hún býr inni í firði.  Eins og þið sjáið þá eru bara góðar fréttir núna af Guðnýju.
Hrefna ætlar líka að vera á Ísafirði í vetur, hún ætlar að ljúka framhaldskólanum á Ísafirði í vor, og verður á heimavistinni. Það er mjög gott að vita af þeim báðum fyrir vestan. Guðný ætlar að hugsa vel um litlu systur og bjóða henni í mat þegar Hrefnu líst ekki á matinn á vistinni. Þetta er líka það sem stóru systur eiga að gera.
Sumarið var frekar stutt hjá Hrefnu þar sem MA lauk ekki fyrr en viku af júní og núna er ein vika eftir af sumarfríinu en MÍ byrjar 22. ágúst. En svona er lífið bara stundum og lítið við því að gera, hún kvartar reyndar ekkert yfir þessu.
Af mömmu er allt nokkuð gott að frétta, hún gengur núna um allt með göngugrind og getur stundum sleppt henni, en úthaldið er ekki mikið, hún er nokkuð vel með á nótunum, man flest það sem henni er sagt, en ruglar dálítið nöfnum og vantar stundum orð yfir það sem hún er að tala um, en langoftast skilst hún mjög vel. Hún man t.d. alveg ef ég segist koma suður þennan og þennan dag eða allt um Guðnýju og líka að Hrefna sé að skipta um skóla.
Hún fylgdist líka mjög vel með öllu í sambandi við Tóta frænda en hann greindist með alvarlegt krabbamein fyrir um 2 mánuðum og það var ekkert hægt að gera og hann dó blessaður fyrir rúmri viku. Hann var jarðaður s.l. föstudag.

Núna er skólaundirbúningurinn að hefjast hjá mér og ekki eftir neinu að bíða og best að fara að koma sér að verki.

Kv. Steinunn

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.06.2011 15:00:46 / guddabudda

24.júní, föstudagur

Nú er þetta orðið að veruleika. Guðný Sæbjörg er flutt að heiman. Hún flutti til Ísafjarðar 13. júní
( ég hef alltaf haldið upp á töluna 13 ).
Kreatínið hélt áfram að lækka, fór í 158, var hæst komið í 258 kringum áramótin og þá leit þetta ekki vel út. Engin augljós skýring finnst á þessari lækkun, smá möguleiki að beinþynningarlyf sem hún var lengi á, hafi haft þessi áhrif en hætt var með þau dálítið fyrir jól, þau geta víst haft slæm áhrif á nýrun í undantekningar tilfellum, þ.a. þá er frekar líklegt að þau hafi virkað þannig á Guðnýju því hún er jú alveg einstök ung kona.
Guðný býr í Stórholti 17, 2.hæð. Hún er mjög hamingjusöm á nýja heimilinu sínu eins og hún segir og nýtur lífsins. Mér finnst þetta svo stórkostlegt, loksins fær hún að nóta sín og hefur nóg fyrir stafni eins og eðlilegt er þegar maður þarf að sjá um heimili, stunda vinnu og svo má ekki gleyma öllu hinu, námsskeiðin, út að borða tónleikar o.s.frv.  Ég á eiginlega ekki nógu sterk og góð lýsingarorð til að lýsa þessari tilfinningu, en eitt er víst að hún á þetta svo sannarlega skilið.

Ef þið eigið leið um Ísafjörð verður hún örugglega glöð að sjá ættingja og vini.

Kv. Steinunn

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.06.2011 00:41:50 / guddabudda

9.júní, fimmtudagur

Nú lítur út fyrir að það verði að veruleika að Guðný flytji.  Búið að festa íbúð á Ísafirði, lyklarnir væntanlega afhentir á föstudag og þá er bara að fara að koma sér vestur. Guðný fer væntanlega á mánudaginn með mér en Jón fer með búslóðina annað hvort á sunnudag eða mánudag. Björk, Torfi og krakkarnir, Hlynur og Hanna stefna að því að fara líka þ.a. það verður ágætis mannskapur sem fylgir henni úr hlaði og sér til þess að allt gangi upp.
Þetta ferli allt er "bara" búið að taka 3 og hálft ár eða svo. Guðný er orðin mjög spennt og hlakkar til að losna við gamla liðið eins og hún segir stundum.  Það er óneitanlega dálítið skrýtin tilfinning sem fylgir þessum tímamótum, en mér finnst Guðný alveg eiga það skilið að komast í umhverfi sem hentar henni, en allar aðstæður eru mjög góðar á Ísafirði.
Síðustu daga hefur verið pakkað og pakkað, skipulagt og skipulagt. Guðný er alveg með sínar meiningar um hvað hún þarf og þarf ekki.  Sigurjón og Steinunn hlakka til að fá að gramsa í því sem hún ætlar að skilja eftir en þar kennir ýmissa grasa og verður gaman hjá þeim.
Ég var að ljíka gardínusaum fyrir Guðnýju og er því pínu lúin og bíð því bara góða nótt.
Kveðja, Steinunn

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2011 12:13:51 / guddabudda

29.maí, sunnudagur

Góðan daginn öll.
Guðný var í eftirliti 11.maí og þá komu ótrúlegar tölur. Kretínið komið niður í 171 !!!!!!!  Þetta er alveg óskaplega skrýtið, hoppar úr 258 niður í 171. Læknirinn hennar var frekar undrandi og talaði um að ef til vill væri skýringuna að finna í því að hún hafði verið komin með allt of hátt kalsíum ( minnir mig) í blóðið og fyrir ca. mánuði var eitt lyf tekið af henni en of hátt kaslíum getur víst hægt á blóðrennsli til nýrans. Við finnum nú samt enga stóra breytingu á líðan Guðnýjar en það er kannski ekkert að marka þegar hún er svona lengi heima. Ég ætla alla vega að bíða eftir næstu mælingu, sem verður um miðjan júní, áður en ég fagna um of.

Guðný fer vestur næst 13. júní og núna er talað um að þá geti hún flutt til Ísafjarðar. Ég er samt alltaf með smá vara við svona fréttum, en ætla samt að láta það fljóta hér með. Áætlað er að hún flytji í íbúð sem Ísafjaðrarbær á og þar fær hún alla þá aðstoð og þjónustu sem hún þarf, þetta verður nánast með sama sniði og þegar hún hefur farið í skammtímavistun.
Núna er ég einfaldlega þannig þenkjandi að ég ætla að vona það besta en gera ráð fyrir hinu versta, þá verður fallið aðeins mýkra ef þetta gerist ekki.

En vitanlega er Guðný mjög spennt og hún er búin að gera laaaangan lista yfir það sem hún þarf að hafa með sér og útvega sér þegar hún flytur.

Smá fréttir af mömmunni minni.
Ég sá hana fyrir viku og hún er ótrúleg þessi kona. Ég held bara að hún sé að mestu leiti komin aftur, er vel áttuð, þekkir alla, fylgist ótrúlega vel með því sem gerist í kringum hana, fylgdist með gosinu t.d. og hefur meira að segja hringt í mig. Þarna notaði hún enn hjólastólinn en svo frétti ég í gær að hún væri nánast búin að leggja honum og farin að nota göngugrind. Hún segist finna til þegar hún gengur en líka þegar hún situr og liggur og því sé alveg eins gott að koma sér bara á fætur. Hún er alveg ótrúleg kona.

Kveð í bili, Steinunn

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2011 13:35:55 / guddabudda

8.maí 2011, sunnudagur

Góðan og blessaðan daginn.
Hér er smá Reykhólaveður, lognið fer aðeins og hratt yfir. En það er allt í lagi, ég er þá ekki að pirra mig yfir að geta ekki verið úti í garði en ég er farin að nýta tímann sem Guðný er á Ísafirði til að fá alls konar pestar, gaman gaman eða þannig.

Ég var að kíkja á tveggja ára gamalt blogg í morgun, ég gæti alveg eins hafa skrifað það í dag. Allt er eins og þá, nema heilsufar Guðnýjar er daprara í dag. 

 Það væri gaman að vita hversu margir fundir hafa verið haldnir um búsetu hennar og enn er ekkert fast í hendi. Eftir helgina verður fundað enn einu sinni fyrir vestan með einhverjum ráðamanni að sunnan og allir eru sammála um að mjög brýnt sé að Guðný geti flutt. Ég kem því bara ómögulega inn í minn heimska haus hvers vegna ekki er hægt að nýta alla þessa fjármuni, sem fara í ferðalög manna, milli Reykjavíkur og Ísafjarðar, í búsetuúrræði fyrir Guðnýju. Ég hélt að það væru til símar, fjarfundabúnaðir og hvað þetta allt heitir. Ég hef oft verið á símfundum og námsskeiðum með fjarfundabúnaði og þetta virkar, enginn ferðakostnaður og ferðalög með fríum frá vinnu.

Ég er alltaf að endurtaka mig í öllum samtölum við fólk sem að þessu koma, hver andsk... er eiginlega í gangi. Mér finnst endalaust verið að brjóta á Guðnýju.

Ég er svo reið núna að ég get ekki skrifað meira í bili.

KV. Steinunn

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2011 09:28:42 / guddabudda

23.apríl, laugardagur

Góðan daginn og gleðilegt sumar kæru vinir og ættingjar.

Guðný kom heim fyrir viku og fer aftur vestur næsta þriðjudag og verður í 13 daga fyrir vestan, kemur heim 9.maí og fer næst vestur þann 13 júní. Það verður því ansi langur tími sem við þurfum að pússla hér heima. Enn er ekkert orðið fast í hendi varðandi flutning til ísafjarðar. Verið að taka út og bera saman tvo kosti og núna er ég alveg hætt að vera hissa í biðinni, og bjartsýnin er ekki að ganga frá mér þessa dagna, því ég hef ekki hugmynd um hvenær af flutningi gæti orðið. Stundum verð ég svo reið og þá hugsa ég ekkert allt of fallegar hugsanir, í annan tíma er ég bara dofin gang vart þessu. en þetta er einfaldlga ekki boðlegt en samt er ekkert annað í boði. 

Heilsa Guðnýjar er ekki til að hrópa húrra yfir. Verkir um allan líkama aukast bara og alltaf eru nýjir verkir að dúkka upp hér og þar. Kreatínið hefur verið að smá hækka í allan vetur og það þýðir bara eitt. 'I byrjun apríl var það komið í 258 sem er ansi mikið stökk frá síðust mælingu, var 222. Þegar kreatímið var komið upp í ca. 150 - 160 byrjuðu öll gömlu umkvörtunarefnin aftur og þau hafa bara farið vaxandi jafnt og þétt. Henni er alltaf illt í bakinu, maganum og fótunum, hársvörðurinn er orðinn mjög viðkvæmur og svo er mikil þreyta og pirringur. Þetta allt veldur miklum svefntruflunum og ekki batnar ástandið við það, því er sálartetrið ekki alltaf upp á marga fiska.

Er þetta ekki bara ágætis væl í bili og nú fer ég út í blíðuna í göngutúr meðan daman mín sefur í stólnum mínum góða.

Þessu má ekki gleyma!
Mamma gamla er dálítið að hressast, en hún er komin á hjúkrunarheimilið Skógarbæ í Mjóddinni og þar fer mjög vel um hana. Trúlega verður hægt að sækja um auka þolinmæðiskvóta innan ekki allt of langs tíma hjá henni, en þeir sem ekki þekkja til, þá er enginn þolinmóðari en  hún og enginn tekur hlutskipti sínu af eins miklu æðruleysi og hún. Því er hún sjálfskipaður bankastjóri Þolinmæðisbankans, ég geri mér von um auka þolinmæðiskvóta hjá henni. 

Sumarkveðja, Steinunn

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2011 11:30:11 / guddabudda

27.mars, sunnudagur

Nú er bara farið að skora á mig að halda áfram að skrifa. Það hefur svo sem alltaf staðið til en ætli ég láti ekki stjórnast allt of mikið af annríki hvundagsins. Nú hef ég enga afsökun, Jón Árni sofandi eftir næturvakt, Hrefna á Akureyri, Guðný á Ísafirði, ég er ein að væflast, leiðist það reyndar ekkert því ég er svo frábær félagsskapur.

En helstu fréttir frá því síðast eru þessar:
Hefur gengið á ýmsu varðandi væntanlegan flutning hjá Guðnýju. tímasetningar standast að sjálfsögðu ekki, hvernig gat mér svo sem dottið það í hug. þ.a. pússluverkinu hér heima er ekki lokið, núna er ég að vona að hún geti flutt fyrir haustið. Ég ætla ekki að leyfa mér neina bjartsýni lengur hvað það varðar. allar væntingar sem við höfum leyft okkur að byggja upp hafa hrunið. Eins og ég hef áður sagt þá kemur Guðný til með að flytja í núverandi húsnæði Skammtímavistunar á Ísafirði, þ.e.a.s. hluta hennar. Hún verður ein í íbúð og það lýst mér betur á en að hún fari að búa með tveim eldri konum. Þær búa áfram í næstu íbúð þ.a. Guðný getur alltaf kíkt til þeirra. Hvenær þetta verður er ekki gott að segja. Nú er búið að festa kaup á húsnæði fyrir skammtímav. en ekkert er farið að vinna í því húsnæði og hugsanglega verður það ekki notað heldur fundið annað hús með betri staðsetningu en þetta hús er inni í firði og því langt að skreppa í miðbæinn þar sem allt lífið er, en vonandi tekur það ekki allt of langan tíma.

En núna þegar það er ljóst að Guðný kemur til með að búa ein þá getum við farið í alvöru að viða að okkur húsbúnaði, en að sjálfsögðu vantar hana allt í búið. Ef einhver er í vandræðum með eh. sem hún gæti þurft á að halda megið þið gjarnan láta okkur vita.

Guðný fór vestur s.l. miðvikudag. Fór síðan suður að keppa á Íslandsmóti fatlaðira, nú um helgina,  haldið í Hafnarfirði. gisting á Grand hotel og til heyrandi húlllum hæ. Ég fretti af henni í gær og hún er allt önnur manneskja, Þarna reynir á hana og hún nýtur þessa í botn. Er duglegri, sjálfstæðari og þetta sýnir okkur enn og aftur hvað það er nauðsynlegt fyrir Guðnýju að flytja að heiman og fara að öðlast betra og sjálfstæðara líf. Þetta skiptir ekki bara máli fyrir andlega líðan heldur líka líkamlega því vitanlega hangir þetta allt saman. 
Kreatínið hækkar hægt og bítandi, var síðast komið í 222 og við þurftum enga mælingu til að segja okkur það. Líkmaleg líðan Guðnýjar er orðin þannig að hún er nær stöðugt með vanlíðan, mis mikla, vaknar þreytt, er þreytt allan daginn fær verkjaköst hér og þar um líkmann. Núna er hún á fyrirbyggjandi verkjalyfjum þ.e. hún fær bara fast verkjalyf x 3 á dag og það virðist duga til að hún fái ekki þessi vondu verkjaköst. Það segir sig sjáft , ef við værum með verki hér og þar alla daga, allar vikur og mánuð eftir mánuð þá værum við nú ekki allt of burðug og kanndi ekki alltaf í góðu jafnvægi.

Mér finnst alveg nóg að hún sé að kljást við þessa líkamlegu vanlíðan svo að andleg bæstist ekki við en Guðný á Ísafirði og Guðný á Reykhólum eru tvær mjög ólíkar persónur. Mér finnst eiginlega lágmarks mannréttindi að henni geti liðið sæmilega í sálinni, því er hægt að stjórna að miklu leiti með réttu umhverfi og svo hangir allt saman , góð regla á hreyfingu, skyldum, afþreyingu, innihalds ríkara líf er bara það sem við förum fram á. Hún á það svo sannarlega oðrið skilið. Hún bíður spennt eftir að flytja vestur því þar eru aðstæður sem henta hennar þörfum mjög vel. Alltaf einhver námsskeið í gangi hjá Símenntunarmiðstöðinni  sem hún nýtir sér, því henni finnst svo gaman að læra, þar er svo sannarlega verið að vinna gott starf.
 Þetta er svona það helsta sem mér liggur á hjarta.
 
Af mömmu gömlu er það að frétta að hún er komin á hjúkrunarheimilið Skógarbæ og það er allt annað að vera þar. Ég hef að vísu ekki komist suður til hennar eftir að hún fór þangað en fæ að sjálfsögðu fréttir og myndir frá bestu bræðrum í heimi.

Að vanda fer Hrefnan mín ekki troðnar slóðir, núna er hún á vinnuvélanámsskeiði - stóra-  en sumarvinnan hennar verður í Þörungav. og kemur þetta til með að nýtast henni vel þar.

Læt þetta gott heita að sinni
Bestu kveðjur, Steinunn

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2011 13:41:05 / guddabudda

15.janúar 2011

Fyrsta blogg þessa árs. Gleðilegt ár og takk fyrir þau gömlu. Alltaf þykir mér jafn vænt um ykkur sem fylgist með okkur, það hjálpar einhvern veginn.
Jæja, nú er eitthvað að fara að komast á hreint varðandi búsetu Guðnýjar. 1.febrúar fær skammtímavistunin á Ísafirði afhent húsnæðið sem var verið að kaupa og þá styttist í að skammt.v. flytji. þegar það gerist þá ætti Guðný að geta flutt fljótlega í núverandi húsnæði skammt.v. ásamt tveimur öðrum konum sem hún kann vel við og hefur kynnst á Ísafirði. Tilhlökkunin er mikil hjá henni enda ekki hægt að búa endalaust í foreldrahúsum. Hún fór vestur 5.jan. og verður út janúar og jafnvel í 6 vikur. Ætli hún verði þá ekki að sætta sig við að vera heima hjá sínum ótrúlega skemmtilegu foreldrum þar til hún flytur, vonandi verður það ekki allt of langur tími, hennar vegna.
Á Ísafirði er svo mart hægt að gera . Hún er farin að æfa boccia tvisvar í viku, er að byrja í dansæfingum í dag, byrjar á matreiðslunámsskeiði í vikunni, fer í Hvestu, hæfingastaður, daglega , sjúkraþjálfun, vinnur í Hamraborg á föstudögum við að vökva blóm, þurrka af borðum og fl. og finnst fólk ekki ganga alltaf nógu vel um. Svo má ekki gleyma tónleikum og kaffihúsaferðunum sem hún stundar stíft. Er hægt að hafa það mikið flottara. Það er bara eitt orð sem lýsir Guðnýju á Ísasfirði, Guðný BLÓMSTAR fyrir vestan.  Ég hringdi áðan og hún gat ekki talað mikið við mig því hún var að fara að klæða sig upp fyrir dansæfinguna, svona er þetta oftast þegar ég hringi , ég er bara að trufla hana. Ég get varla lýst því hvað mér líður vel að vita af henni í þessum aðstæðum, það er alveg kominn tími á hana að henni líði vel og njóti þess að vera til. 

Það sem skyggir á þessa gleði hjá mér er blessað nýrað hennar, það er ekki nógu burðugt. Kreatínið hefur hækkað hægt og bítandi í vetur, var 174 í nóvember, í lok des. var það komið í 208 og í síðustu viku var það komið í 216. Fyrir jól var gamli pirringurinn kominn á fullt, líka meðan hún var fyrir vestan. Ég ræddi þetta við lækninn hennar hann Ólaf Skúla og vildi vita hvort ekki væri eitthvað hægt að gera, gefa henni, svo henni liði betur í sálinni sinni, og þá hjálpað henni til að takast á við andlegu og líkamlegu vanlíðanina sem hækkuninni fylgir. Hann lagði til að auka við hana geðlyf sem hún hefur verið á síðan hún kom á Lsh eftir nýrna skiptin. Þetta virðist gera henni gott alla vega gengu áramótin mjög vel hér heima, amma og afi, Björk og co og Hlynur og Hanna voru öll í mat og allt gekk vel og bara gaman, gaman, gaman, enginn pirringur. Ef þetta getur hjálpað henni áfram þá er það bara frábært. Alla vega hefur allt gengið vel á Ísafirði það sem af er þessu ári.

Smá fréttir að mömmu gömlu. Hún er óttalega mikill lasarus. Er enn á Landakoti, ekki hægt að gera vistunarmat fyrr en sýnt er að legusárin séu eitthvað að lagast  og að hún þurfi ekki frekari sýklalyf í æð, en hún hefur verið með sýklalyf í æð í hátt í 2 mánuði held ég, alla vega mjög lengi. Henni líður betur núna eftir að hún var laus við þau. Það slær oft ansi mikið út í fyrir henni og tímaskynið er ekkert, sem betur fer segi ég, því hún gerir sér ekki grein fyrir því hvað það er langt síðan hún veiktist, en hún þekkir alla sem koma og það er gott og á millil virðist hún alveg vera með á nótunum.

Nú er prófatörn hjá Hrefnu, vika búin og vika eftir, og þá er rúmlega viku frí.

Hafið það sem allra best öll, Kveðja Steinunn

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.11.2010 19:56:52 / guddabudda

29.nóvember, mánudagur

Óskapleg skrif-leti hér á bæ.  Guðný fór vestur fyrir viku og þar er allt í sómanum. Heldur gengur nú allt hægt hvað búsetuna varðar, ekki búið að ganga frá kaupum á íbúð fyrir skammtímavistunina þ.a. það verður bið á að Guðný flytji, ég yrði ekki hissa þó það dragist til næsta vors. Við verðum því líklega í pússluspilinu áfram  í vetur.

Af mömmu er það að frétta að hún hefur braggast nokkuð, málið hefur komið þó nokkuð en það er dagamunur á henni, stundum er hún með margt á hreinu, t.d. hverjir hafi komið en svo er hún ekki alltaf með rétta staðsetningu á hlutunum. Á miðvikudaginn verður fjölskyldufundur á Landakoti og vonandi verður þá hægt að fara að gera vistunarmat svo hægt sé að sækja um hjúkrunarpláss fyrir hana en hún vill helst af öllu komast í Sunnuhlíð í Kópavoginum.

Skrifletin aftur komin, kveðja Steinunn

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.10.2010 17:25:33 / guddabudda

31.okt. sunnudagur

Guðný hress og kát á Ísafirði, fór í göngu, rauðklædd á kvennafrídaginn ásamt öðrum konum á Ísafirði.
Næsta föstudag kemur hún heim og verður í rúmar tvær vikur, fer aftur 21. nóv. vestur og verður til 18.des. Vondandi eru svo flutningar næsta skrefið. 

Af mömmu er þetta að frétta. H'un var flutt á Landakot s.l. fimmtudag.  Þarf ekki lengur sondu, kyngingin er komin sem betur fer. H'un þreytist mjög fljótt en á milli virðist hún alveg fylgjast með. Við vorum í bænum fyrir viku, Hrefna kom suður og á sunnudeginum þegar við komum við hjá henni áður en við fórum vestur þá spurði hún einfaldlega hvort við værum svo að fara vestur á eftir. OKkur fannst hún svo sofandi bæði´þegar við fórum til hennar á föstud. og laugardeginum þ.a. þetta kom okkur alveg yndislega á óvart.
Björk og fjölsk. voru syrir sunnan um helgina og í gær spurði hún Björk hvort hún kæmi við hjá Lilju ( á Grund sem er núna á Akranesi ) og þetta gladdi okkur líka mjög. 
En vonandi þarf hún ekki að vera lengi á Landakoti. þarna er svo þröngt, en við erum auðvitað alltaf að miða allt við Barmahlíð á Reykhólum sem er sannarlega til fyrirmyndar hvað aðbúnað aldraðra varðar.

Ég ákvað að fara ekki suður þessa helgi því um næstu helgi þarf ég að ná í Guðnýju og mér er sagt að ég sé víst ekki 25 lengur.  Ég uppgötvaði svo í dag að ég hef ekki átt svona sunnudag í langan tíma, þ.e. síðustu sunnudagar hafa annað hvort verið á þjóðveginum eða hausverkur í bælinu. Núna var ekkert svona og ég veit varla hvernig ég á að vera, en ég ætla nú samt ekki að hvarta yfir því.

Kveð í bili. Steinunn

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2010 12:01:27 / guddabudda

16.okt. laugardagur

Takk fyrir kveðjuna Guðný Þóra,hvernig gengur hjá þér?

Nú er Guðný á Ísafirði, fór þangað 4. okt, viku fyrr en áætlað var, fékk aukaviku sem kom sér mjög vel fyrir alla. Staðan er bara svipuð hjá Guðnýju, kreatínið hangir í 172 - 174 sem er ekki alveg nógu gott því henni líður ekki nógu vel. Er alltaf með einhverja verki hér og þar, svo kallaða stoðverki eða eitthvað slíkt . Hefur verið með verki í fótunum, sérstaklega annarri ristinni í margar vikur og engin lausn finnst á því. Hún virðist dæmd til að vera sífellt veð verki, þetta er alvegt óþolandi. Eins og gefur að skilja fer þatta í skapið á henni og er í raun ótrúlegt hvað hún þolir þetta, flestir væru orðnir snar af þessu, en hún þekkir eiginlega ekki annað en að finna alltaf einhvers staðar til. Hnappurinn er allt of oft að angra hana en hann er nauðsynlegur út af öllum lyfjunum, fékk nýjan hnapp í gær og vonandi verður hann til friðs í einhvern tíma. 
Nú er ef til vill eitthvað að gerast í búsetumálunum. Loksins er búið að afgreiða mál skammtímavistunar og mér skilst að um helgina komi auglýsing eftir húsnæði fyrir hana og þegar það er gengið í geng og búið að finna húsnæði fyrir hana þá ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að Guðný flytji vestur og fari að búa í núveransi húsnæði skammtímavistunar ásamt 2 öðrum konum sem Guðný hefur kynnst og fellur vel við. Aðstæðurnar verða stórfínar, góð sameiginleg aðstaða sem og prívat rími fyrir hverja þeirra. Guðný bíður bara eftir að geta flutt, er orðin langeygð eftir þessum tímamótum og við hlökkum vitanlega öll til fyrir hennar hönd. Á Ísafirði blómstrar hún einfaldlega. Þar getur hún sótt hin ýmsu námsskeið, fer á leiksýningar, tónleika, prjónakaffi, út að borða og svo að sjálfsögðu er það vinnan og endurhæfingin. Núna eru hún og Heiða, sem bjó hjér á Reykhólum, farnar að vinna hluta úr degi tvo dag vikunnar í Hamraborg, sem er sjoppa og veitingastaður. Er þetta ekki frábært. Ég hef einu sinni heyrt í henni eftir að hún fór vestur, hún má bara ekkert vera að því að hringja, það er svo gaman og mikið að gera.

Svo eru hér fréttir að henni mömmu minni og þær mættu svo sannarlega vera betri.
5. okt var mamma úti í kirkju eins og venjulega á þriðjudögum, sem betur fer, því allt í einu hætti hún bara að tala. í stuttu máli sagt þá var hún komin með blóðtappa í höfuðið, var flutt í snatri á spítala, blóðtappinn meðhöndlaður en þá fór að blæða við heilann, hún lamaðist hægra megin, en er núna komin með máttinn að hluta til aftur, en málið hefur ekki komið nema mjög takmarkað. Hún sefur mikið, þarf alla aðstoð, getur ekki kyngt og þarf því að vera með sondu fyrir næringu og lyf. Þar sem tjáningin er svona takmörkuð veit maður ekki hvernig staða hennar er, stundum finnst okkur hún alveg vera með og þekkja okkur, stundum ekki. Það er svo sárt að horfa upp á þessa sterku konu og ná litlu sambandi. Hún hefur alltaf fylgst svo vel með öllum í stórfjölskyldunni hennar  og mikill vinur barnabarnanna sinna. Tíminn einn mun leiða í ljós hver framvindan verður, og nú þurfum við að taka óspart út úr þolinmæðibankanum, en þar er hún einmitt bankastjóri. Enga mannesku þekki ég sem er þolinmóðari en hún.
Mig langaði svo til að þið sem hafið fylgst með okkur vissuð af þessari stöðu.
 
Fallegar haustlitakveðjur, Steinunn

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.09.2010 10:12:04 / guddabudda

25.sept. laugardagur

Allt of langt síðan ég hef bloggað. Þykist hafa mikið að gera, vinnan kominn á fullt, er í heilli stöðu í kennslu, og geri ekki mikið meira en að anna því ásamt þeirri umönnun sem  dóttir mín þarf. Enn erum við í sömu biðstöðu varðandi flutning vestur og pússlið sem er í gangi verður  alla vega fram að áramótum,vonandi verður þá eitthvað komið en þrátt fyrir frábærar konur  sem vinna með Guð'nýju er þetta erfitt.  Heilsan hennar mætti vera betri, kreatínið virðist vera stopp  í bili a.m.k. í 172 en það er ekki alveg nógu gott það þyrfti að vera lægra svo henni lið betur. Hún er komin með alla gömlu vaníðanina aftur, alltaf illt í öllum líkmanum, mikill bjúgur sem sest á hana og þrátt fyrlr nýlega aukin þvagræsilyf heldur hún áfram að bæta alltaf  smá á sig, fæturnir eru eins og harðir símastaurar á kvöldin. hnappurinn er alltaf eitthvað að angra hana alltaf stutt í smá sýkingu þar með tilheyrandi  óþægindum, sem vekja hana á nóttunni verkir í fótum vekja hana líka. Hún er mjög orkulítil og sofnar flesta dag eftir að dagskránni hennar lýkur með Ólafíu og sefur þá í 2 - 3 tíma. Sofnar samt snemma á kvöldin. En Guðný er rosalega ánægð með þær Indu og Ólafíu þær ná svo vel til hannar og ég get unnið alveg áhyggjulaus meðan þær eru hjá henni, það er ómetanlegt og Guðný ber líka fullt traust til þeirra.

Ég get ekki skilið hvers vegna þetta blessaða "kerfi" þarf alltaf að vera svona þungt í vöfum. Í sumar kom jákvætt svar frá félagsmálaráðuneytinu varðandi bústuna á Ísafirði og mér skilst að það þurfi bara að koma auglysing þaðan efti húsnæði en það virðist vera alveg ótrúlega flókið að koma því af stað. Mér skilst að svæðiststjórnar konur fyrir vestan séu að sjálfsögðu farnar að líta í kringum sig en en allt stendur á þessari blessaðri auglýsingu. Þetta er gjörsamlega óþolandi. Hér er einfaldlega andleg og líkamleg heilsa nokkurra einstaklinga í húfi, en kannski finnst ráðamönnum betra að fjölga þeim sem ekki geta sinnt vinnu, undarlegt....

Það er búið að draga mann einhvern veginn á asnaeyrunum í svo langan tíma að maður verður dofinn, ég er eiginlega hætt að verða reið, hef ekki orkuna í það en er óskaplega sár fyrir hönd dóttur minnar.  Mér finnst hún búin að þola nóg og að löngu sé kominn tími á að hún fái tækifæri til að lifa aðeins betra lífi.

Staðan í augnablikinu er svona: Kallaði á mig um 5:30 í morgun var svo illt í kringum hnappinn og einnig í fótunum, sofnaði ekki aftur en reyndi það því ég var ekki alveg til í miklar aðgerðir, hausinn minn var með einhverja stæla, um kl 7:30 skipti ég á umbúðum kringum hnappinn, hjálpaði til með brýnust morgun verk, Guðný fékk sér morgun mat og núna kl 10 er hún búin að sofa í ca klukkutíma yfir sjónvarpinu, lyfjagjöfin er eftir hafði ekki orku í hana eftir morgunmatinn.
Þetta er í raun dæmigerður morgunn, hún vaknar flestar nætu 2 - 3 sinnum vegna vanlíðunar. Það er svo erfitt að vera svona hjálparvana gangvart þessu og geta lítið sem ekkert gert til að henni líði betur.

Jæja, nú held ég að nóg sé kvartað í bili, fínt að fá smá útrás hérna og nú ætti ég að geta tekist á við brýnustu heimilsstörfin.
Þið sem nennið að lesa þetta og fylgjast með okkur, enn og aftur takk fyrir það. Einhvern veginn hjálpar það alltaf....
Kv. Steinunn

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.09.2010 21:17:38 / guddabudda

8.sept. miðvikudagur.

Nú er skólinn byrjaður hjá mér. Guðný kom frá Ísafirði fyrir viku og verður heima næstu 4 vikurnar til viðbótar. Hún kom nú bara nokkuð brött að vestan, en er búin að ná sér í kvef eina ferðina enn. Hún var svo heppin að fá hana Indu í morgunaðstoðina, heimahjúkrunina, og svo er það hún Ólafía Sigurvinsd. sem ætlar að vinna með henni á daginn. Okkur og Guðnýju líst mjög vel á þessar komur, þær standa sko fyrir sínu. 
Enn er ekki komin tímasetning á flutning til Ísafjarðar, skil ekki af hverju það þarf að dragast svona þegar búið er að gefa jákvætt svar. Guðný verður því í sama pússluverkinu hér heima og á Ísafirði fram að áramótum.

Guðný og Jón fóru suður í dag, beinþéttnimæling á morgun og eftirlit á föstudag. Spennandi að vita hvernig kreatínið verður núna, ég þori nú ekki að gera mér miklar vonir um lækkun, Guðný er með svo mikinn bjúg sem erfitt virðist vera að losna við. En... þetta kemur í ljós...

Nú fer MA að byrja. Hrefna fer norður á laugardaginn, ég ætla að skreppa norður á föstudag og vera á námsskeiði á laugardeginum á Akureyri, gisti svo hjá Grétu systur og svo heim á sunnud. Það er alltaf svo gott að koma í Árholtið til hennar Grétu.

Kveð í bili, Steinunn

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2010 09:43:37 / guddabudda

22.ágúst, sunnudagur

Þá styttist í vesturferð. Guðný fer á morgun og verður í 2 vikur og svo 5 vikur heima áður en hún fer svo næst. Staðan hefur lítið breyst, bjúgurinn stendur í stað, hún þyngist heldur og er með alls konar verki af og til um líkamann sem veldur því að þráðurinn er mjög stuttur a.m.k. þegar fjölskyldumeðlimir eiga í hlut. 
Ég veit ekki hvað verður í boði fyrir hana hér heima þegar hún kemur aftur, eina sem er alveg klárt er að Inda verður með heimahjúkrunina á morgnana. Hún kom í smá heimsókn einn morguninn og Guðný er mjög ánægð og að sjálfsögðu við líka, Inda kallar ekki allt í ömmu sína. En vonandi verða þessa 5 vikur bara fínar, ég veit að þær sem taka að sér skipulagningu á þeim gera það eins vel og hægt er. Ég geri mér alveg grein fyrir því að þetta er ekki auðvelt, ekki um marga að ræða.  

Af öðrum í fjölskyldunni er það að frétta að Hrefna byrjar í MA 13. sept, ótrúlegt að hún sé að byrja sinn 3ja vetur þar. Hún hefur unnið í Þörungaverksmiðjunni í sumar, í netum, löndun og svo hefur hún einnig leyst af á Karlseynni. Hún hefur haft nóg að gera, svo er alltaf eitthvað í Gullsteini líka.
Hlynur er í Þörungav. og leigir íbúð hjá Begga, hér rétt fyrir neðan og hann bara vinnur og vinnur.
Alltaf nóg að gera hjá Björk og Torfa, hann í Þv. og Gullsteini og Björk í heimilsihjálp í sumar, fer svo að vinna í Barmahlíð í vetur.
Steinunn og Sigurjón fara í 3. og 1. bekk, þau verða í samkennslu. Ég er svo heppin að fá að kenna þeim í vetur en við Ásta verðum saman með 1. 2. og 3. bekk. Sigurjón hefur talið niður dagana eftir að skólinn byrji.
Jón vinnur bara og vinnur eins og ávalt, en ég geri lítið sem ekki neitt, æ, kannski ekki alveg. Ég náði mér í kvef og vesældóm eftir fyrstu formlegu vinnuvikuna í skólanum en ég ætla að vera orðin hress á morgun, annað er ekki í boði, fyrsti skóladagurinn, þá getur maður ekki verið veikur.
Um næstu helgi eru Reykhóladagar haldnir hér í sveit, Spurningakeppni, grill, allir skreyta þorpið og sveitna sína, markaður, nokkrir bjóða í súpu í heimahúsum á laugardeginum - það verður bara gaman, matur, skemmtun og svo ball. Björk stýrir þessu núna með aðsoð félagasamtaka í sveitinni.  Þetta verður örugglega mjög gaman.

Nú þarf ég að fara að hafa Guðnýju til fyrir vesturferð, taka til lyf, pakka og muna að gleyma engu.

Bless í bili.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18
Klukkan
Textabox
Hér er hægt að fá fréttir af Dannmerkurferð Guðnýjar. Endilega skrifið í gestabókina